Eins og úr djúpu myrkri fædd
eru fótspor þín í afmörkuðum ljóma
stigin milli dranga á dimmri jörð
lík samruna ókennilegri dýra
sem minna engu að síður á
hin algengu dýr hafdjúpanna
úr sporunum spretta
keilur kufungar hrein form
gangið gegnum myrkrið
farið hægt inn í
undur þessa verks
á þennan hátt
Guðbergur Bergsson
